vogamærin

Vogabúar

21.07.2009 16:20:45 / elinsam

blogg... hvað er það?

mæ god... ég var ekki viss um að muna aðgangsorðið hingað inn... bloggar einhver ennþá sem er ekki að tjá sig um fréttir á moggabloggi... jú sennilega. Ég hef bara verið á facebook síðustu mánuði og þar kemur allt það helsta fram.

En alltaf ef ég kíki er þó einhver sem kíkir hingað inn... ég er alveg þvílíkt hissa á því... það væri nú gaman að vita hver er svona duglegur og dyggur aðdáandi :)

en jæja... maður lifir enn og notar víst ennþá netið

kv E

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2008 21:19:20 / elinsam

gleðilega hátíð

mikið eru þessi langþráðu jól fljót að líða, þetta kemur mér á óvart á hverju einasta ári.
Jólin í ár eru þar engin undantekning, samt á ég langt frí.

En héðan er nú bara allt ljúft að frétta, ég bjóst við kreppujólum og var svo nákvæmlega sama um allar gjafir fyrir mig, var miklu spenntari yfir gjöfum sonarins. En þegar aðfangadagur rann upp virtist ekkert hafa minnkað gjafaflóðið frá því sem áður hefur verið. Að vísu rann ég á rassgatið með kreppulegu jólaplönin mín sem áttu að felast í litlum sem engum gjöfum til kallanna minna þar sem annar þeirra hefur ekki mikið vit á þessu og hinn hefur nógu mikð vit á kreppunni til að skilja færri pakka. En æi... þar sem kreppan hrjáir okkur ekkert að ráði ennþá þá bara voru keyptir nokkrir pakkar... eitthvað smádót í ikea og rl ásamt raunverulegu gjöfunum.

Þetta var bara allt voða gaman og ég fékk miklu fleiri pakka en ég reiknaði með, fékk allt sem ég óskaði mér þ.e mamma mía, straubretti, glös og panna... jú og tengdó mátti gefa mér eina heilalausa ástarsögu fyrst henni fannst hún þurfa að gefa mér eitthvað... og ég fékk fjórar.....

Aldrei hefði mig grunað að ég ætti eftir að óska þess að fá straubretti í jólagjöf og það sem meira er að hlustað yrði á mig!

En á þorláksmessu kom jólasveinninn faðir minn með stóran pakka og nokkra minni og fannst mér ég þekkja lagið á þeim stóra. Fékk svo formlegt leyfi til að opna hann á aðfangadag þar sem sá dagur er sennilega sá eini sem mér virkilega finnst að ég þurfi að strauja.  Aldrei slíku vant straujaði ég rúmfötin (venjulega þarf þess ekki þar sem ég á ættingja sem vita að ég stunda ekki slík heimilisstörf og gefa mér straufrí) og það sem meira var að mér fannst þetta æði.. straujaði svo skyrturnar á feðgana og var næstum fúl yfir að þurfa ekki að strauja meira....

já svona þroskast maður víst í lífinu.....

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 07:51:26 / elinsam

smáfærsla

bara að henda inn smá svona til að hafa eitthvað í september....

en já jæja... rigning.... rok... rigning.... rok.... á maður ekki bara að vera orðinn þunglyndur og grumpy?

það skilar samt engu í sálarbúið....

kýs því að brosa bara framan í heiminn og vonast til að hann brosi til mín í gegnum tárin (rigninguna)

en annars er allt gott að frétta, litlar sætar stelpur að fæðast í kringum okkur víðsvegar um landið og von á fleiri börnum enn víðar um landið og það er bara gaman.

Mitt barn hins vegar gerir ekki annað en stækka, borða, sofa og tala... það er með ólíkindum hvað barnið er duglegt að tala... það mátti svo sem eiga von á því að hann hefði eitthvað frá mér.... hann er svo ófeimin við að prófa öll möguleg orð sem maður leggur fyrir hann... en stundum þegar hann er spurður geturðu sagt ..... þá kemur bara skýrt " Nei" og þá er það ekki rætt neitt frekar... hefur ekkert upp á sig.

hann er mikill lestrarhestur, skemmtilegasta bókin þessa dagana er gamla uppáhaldsbókin mín um apann júlíus... barnið suðar hreinlega um apabók... reynir svo í gríð og erg að kyssa apann í bókinni... reynir reyndar að kyssa margt í bókum og reynir að borða það sem má borða... mjög krúttlegt allt saman :)

 

sagði vogamærin og fór að lesa um Júlíus

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 14:17:35 / elinsam

úps.... hvert fór það

nú jæja.. þá er komið að einn einu árlegu sjokkinu.... "guð sumarið er búið" skjokkið er að skekja líf mitt þessa dagana!!

Ég hef ekki unnið síðan fyrir júróvísíon, þá beið ég nær pissandi í mig af spenningi, ég var að far að hefja lengsta sumarfrí sem ég hef átt síðan ég komst á vinnumarkað í kringum 10 ára aldurinn. Ég var að vísu ekki á vinnumarkaði síðasta sumar þar sem ég var enn í fæðingarorlofi en ég tel það nú ekki með þar sem ég puðaði og þrælaði sem móðir í fullu starfi með barn sem hefur alltaf verið eins og engill :)

En jæja... það var nú ýmislegt sem stóð til að gera í sumar eins og svo oft áður.. ég gerði fæst af því... þó gerði ég nú meira en oft áður. Ég ætlaði reyndar í fleiri útilegur, við fórum í eina... sem var reyndar svona semi útilega þar sem hún fór fram á lóðinni heima í Grindý. Þegar barnið rumskaði skaust ég á fætur inn í hús til að hita mjólkina í örbylgjunni... ekki mjög útilegulegt en hentaði vel.

Nú ég keypti sundkort og var nokkuð tíður gestur í sundlauginni hérna í Vogunum. Ormurinn er meira að segja með smá skýlufar!!

Ég reyndi að gera fingur mína grænni.... og jú jú, þeir grænkuðu. Hef lagt hjartað og sál í að klippa til runnana mína og á varla heitari ósk en að gera þá þétta og fallega (það er sko heitasta garðóskin) er því í lamandi sorg núna þar sem angans litlu runnarnir sem döfnuðu svo vel eru alsettir ryðsvepp. Nú í beinu framhaldi af því að þá er ég búin að fræðast nokkuð um ryðsvepp og hvernig Gljávíði tókst að harka hann af sér í kringum aldamótin...

Stefnan var að kaupa kort í húsdýragarðinn og hreinlega búa þar... við fórum tvisvar ég, ormurinn og pabbi. Annað skiptið var í boði stöð tvö og hitt bara svona til að eiga góðan dag. Sonur minn er ekkert eins spenntur fyrir þessu og ég hafði planað þannig að kortið í garðinn verðu nú látið bíða betri tíma.

nú, svo var stefnan tekin á fjallgöngur (sem mér finnast nú ekkert svo skemmtilegar) en ég lét nú bara duga að rölta um heimabæinn og hlusta á son minn segja frá því sem fyrir augu bar: "bíll - bíll - bíll - hjól - ljós - bíll - bíll - ljós - bíll - hjól - bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll" og eitthvað í þeim dúr

Það var einmitt út af svona samræðum hjá börnum í gegnum tíðina sem mér fannst ekkert liggja á að fara að unga út.... almáttugur hvað börnin gátu verið leiðinleg!!! En þessi elska hann sonur minn, hann er ekki leiðinlegur, hann er fróður, athugull, skemmtilegur, samtalsfús, fróðleiksfús og fleira í þeim dúr. Ég var sannfærð um að við fengjum þvílíkan leiða á hvort öðru, hangandi heima í allt sumar, en því er fjarri... við erum bæði ennþá ótrúlega skemmtileg

sagði vogamærin og rölti af stað til að skæja skemmtilega barnið á leikskólann

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 18:29:02 / elinsam

stattu þig í vinnunni.....

 NEW OFFICE POLICY

Dress Code:

1) You are advised to come to work dressed according to your salary.

2) If we see you wearing Prada shoes and carrying a Gucci bag, we will assume you are doing well financially and therefore do not need a raise.

3) If you dress poorly, you need to learn to manage your money better, so that you may buy nicer clothes, and therefore you do not need a raise.

4) If you dress just right, you are right where you need to be and therefore you do not need a raise.



Sick Days:
We will no longer accept a doctor's statement as proof of sickness. If you are able to go to the doctor, you are able to come to work.

Personal Days:
Each employee will receive 104 personal days a year. They are called Saturdays & Sundays.

Bereavement Leave:
This is no excuse for missing work. There is nothing you can do for dead friends, relatives or co-workers. Every effort should be made to have non-employees attend the funeral arrangements in your place. In rare cases where employee involvement is necessary, the funeral should be scheduled in the late afternoon. We will be glad to allow you to work through your lunch hour and subsequently leave one hour early.



Bathroom Breaks:
Entirely too much time is being spent in the toilet. There is now a strict three-minute time limit in the stalls. At the end of three minutes, an alarm will sound, the toilet paper roll will retract, the stall door will open, and a picture will be taken. After your second offense, your picture will be posted on the company bulletin board under the 'Chronic Offenders' category. Anyone caught smiling in the picture will be sectioned under the company's mental health policy.



Lunch Break: (Love this one)

* Skinny people get 30 minutes for lunch, as they need to eat more, so that they can look healthy.

* Normal size people get 15 minutes for lunch to get a balanced meal to maintain their average figure.

* Chubby people get 5 minutes for lunch, because that's all the time needed to drink a Slim-Fast.



Thank you for your loyalty to our company. We are here to provide a positive employment experience. Therefore, all questions, comments, concerns, complaints, frustrations, irritations, aggravations, insinuations, allegations, accusations, contemplations, consternation and input should be directed elsewhere.



The Management

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 22:33:36 / elinsam

mamma mia

ég gerði nokkuð um daginn sem ég hef aldrei gert áður....... ég fór tvisvar á sömu myndina í bíó.... og við erum að tala um að miðinn kostar litlar 1100 krónur og ég er að verða ýkt nísk þannig að þetta er nú frekar mikil frétt!!!

en málið var að hún Anna vinkona min hringdi í mig einn laugardag og spurði hvort mig langaði ekki í bíó á mamma mía. Ég er nú svo vel að mér í bíómálum nútímans að ég vissi ekki einu sinni að það væri búið að gera mynd eftir söngleiknum. Jú jú, ég gat svo sem farið.

ég hef aldrei verið eitthvað brjálað abba fan, hef hlustað á eitthvað af lögunum þeirra og dillað mér lúðalega með.... tekið eina og eina aríu syngjandi thank you for the music og ímyndað mér að ég væri þessi manneskja sem fengi alla til að þagna um leið og ég byrjaði að syngja (never gonna happen by the way en allir eiga rétt á draumum)

ég eignaðist einhverntíman diskinn mamma mia með lögunum úr söngleiknum og ojbara... þvílík vitleysa að hlusta á þessi fallegu lög í misþyrmingarbúning einhverra annara en abba....

en jæja aftur að bíómyndinni sem ég ákvað nú að fara á... með engar væntingar, enga hugmynd um söguþráð (hef aldrei séð söngleikinn)

á fyrsta andartaki myndarinnar gerðist eitthvað innra með mér, ég skynjaði mátt digital útgáfu. Myndin sem byrtist mér á skjánum þessar fyrstu sekúndur var svo ótrúlega tær og falleg..... svo heyrði ég fyrsta hljóðið..... lag ómaði sem ég hafði aldrei veitt mikla eftirtekt fram til þessa. Ég varð heilluð...... og hugsaði með mér: þessa mynd verður mamma að sjá!!

Myndin er svo björt, hún er svo lifandi, hún er svo falleg, hún er með húmor, hún fékk mig til að tárast móðurlegum tárum, hún fékk mig til að gleðjast, hún fékk mig næstum til að deyja úr "guð minn góður er ég að heyra þetta" skömm, hún gerði það að verkum að ég sat með þvílíkt aulabros - alveg stjörf margar mínútur í einu. Hún fékk mig ( og sjáanlega marga aðra) til að dilla tánum, hausnum og örugglega einhverjum fleirum líkamspörtum í takt við unaðslega tónlist sem ég kunni aldrei að meta neitt brjálæðislega.

Tónlistin er svo annar kapítuli....... ég er ekki þessi týpa sem pæli í textum, yfirleitt finnast mér textar svo vitlausir og innihaldslausir (fordómar) að ég er ekkert pæla neitt sérstaklega í þeim. Þarna voru textarnir í samhengi við líf einhverra persónar, þeir voru þýddir fyrir mig..... þó ég skilji ensku ágætlega, er ég ekkert góð í að þýða allt þannig að það meiki heildrænt sens....... en þarna...... þá birtist þetta allt svo kristaltært og ljóslifandi. Ég skynjaði lögin upp á nýtt..... Meryl Streep er skyndilega komin á lista hjá mér yfir frábærar söngkonur eftir að hlusta og HORFA á hana flytja The Winner Takes it All..... þegar ég fór svo inn á imdb.com og las gagnrýni um söng hennar fauk pínu í mig... hvað var þetta ljót að fólk að segja að söngurinn væri nú ekkert til að hrópa brjálað húrra fyrir... eftir allt væru þetta leikarar sem syngju, ekki söngvarar.... ég varð nú bara móðguð!!

Móðir mín sem hefur alltaf haldið mikið uppá ABBA tók mig á orðinu þegar ég hringdi í hana og tilkynnti henni að ég ætlaði með henni á Mamma mía. Við fórum strax á mánudeginum á eftir fyrri ferðinni minni.

Ég hljó á öllum sömu stöðunum, táraðist á sömu, brosti aulalega á sömu, heillaðist á sömu, fékk nettan bjánahroll á sömu......... eini munurinn var að ég vissi hvernig myndin endaði... en það skipti ekki nokkru máli.

Núna kveiki ég stundum á youtube og fæ lög úr myndinni, á eftir að fara í skífuna til að vita hvort lagadiskurinn sé kominn þangað. Ég bíð mjög spennt eftir DVD útgáfu myndarinnar, bæði að sjá hana sjálf og sýna hinum sídansandi syni mínum... hann verður að heillast eins og ég..... ég hef bara aldrei heillast svona af mynd....

sagði vogamærin sem truly heldur að hún sé góð að syngja!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 21:36:37 / elinsam

ég eða nafna mín

sko... þetta er mynd og frétt af vogamærinni af mbl.is

Vogmær


Vogamær finnst á Skagaströnd

Vogmær (Trachipterus arcticus) er ein af níu tegundum fiska af vogmeyjarætt (Trachipteridae) og sú eina af þessari ætt sem finnst við Ísland. Ein slík fannst fyrir skemmstu á Sandlækjarfjöru á Skagaströnd. Það er Húnahornið sem greinir frá þessu.

Samkvæmt Náttúrustofu Norðausturlands getur Vogmærin orðið allt að 3 metrar að lengd en er afar þunnvaxin. Einn langur bakuggi gengur eftir endilöngu bakinu og er hann rauður á litinn eins og hinir örsmáu eyruggar og kviðuggar. Sporðurinn er líka rauður og vísar aðeins upp á við. Sjálf er vogmeyjan silfurgrá á lit. Augun eru stór og munnurinn sérstakur þar sem hann lengist fram í trjónu þegar hann er opnaður. Vogmærin sem rak á land í Sandlækjarfjöru var 147 sm löng og 27 sm að breidd.

Ekki amalagt að eiga svona næstum því nöfnu
sagði vogamærin og kíkti í spegil til öryggis (ef þetta væri nú kannski hún)


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2008 01:29:26 / elinsam

Bæ bæ ást

Ég fór í sjoppuna í gær, var búin að sjá auglýst að nýji diskurinn með Hvanndalsbræðrum ætti að fást í enneinum. Þeir voru nú ekki til en hins vegar voru tveir diskar á safnkortstilboði. Diskurinn með landi og sonum og svo Örn árna og hann Pétur álftagerðisbróðir.... saman kallast þeir víst yfirliðsbræður..

Ég ákvað að kaupa þá bræður þar sem stelpan í sjoppunni sagði að þetta væri mjög skemmtilegur diskur. Hún hafði nú ekki mikið álit á þessu þegar mamman keypti en svo heillaðist hún líka og verslaði eintak. Ég þekkti ekkert af þessum lögum en hún sagði að þetta væru lög sem maður þekkti þegar maður heyrði þau... ok... því ekki það. Þarf að eyða þessum punktum hvort eð er.....

Við fyrstu hlustun heillaðist ég ekki...... svo eftir að hafa hækkað í tækjunum og gefið þessu meiri sjens þá vandist diskurinn vel.

Nú er ég hins vegar komin með leið á honum....... enda búin að hlusta á hann þrisvar!!

sagði vogamærin alveg laus við yfirlið

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 17:42:38 / elinsam

One Tree Baby

Af einhverjum óútskýranlegum ástæðum datt ég inn í nýjustu seríuna af One Tree Hill, í einhver ár hef ég hlegið af fólki á mínum aldri sem horfir á þessar bandarísku unglingaseríur..... en vegir Guðs eru órannsakanlegir og hann er líka svo ríkur af húmor þessi elska þannig að hann ákvað að veita mér hrokaáminningu og því datt ég inn í þetta. Nú eða þá að hann Guð hafði ekkert um þessa vitleysu mína að segja.... en hvað um það....

The perfect world á sér stað í One Tree Hill að vísu með yfirgengilegum vandamálum líka. Það er pínu sárt að viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum líka að ég skuli vera jafn "húkkt" á þessum þáttum og raun ber vitni. Þeir eru bölvuð vitleysa en samt má ég ekki missa af einum því það er svo spennandi að gerast núna.... ég hreinlega verð að fá að skýra frá helstu persónunum svona fyrir þá sem ekki hafa dottið inn í þennan "snilldar" þátt.

Lukas:
Rétt rúmlega tvítugur, agalega sætur, er búinn að gefa út þvílíkt djúpa sjálfsæviskáldsögu... þ.e nýtti líf sitt og reynslu til að segja ástarsöguna sína og hennar Peyton. Hann var líka voða vinsæll í skóla, var í körfubolta - rosa góður og er núna þjálfari skólaliðsins... ásamt jafngömlum vini sínum sem býr samt bara í einhverri kommúnu með jafnöldrunum.

Peyton:
aðalsöguhetjan hans Lukasar, æskuástin sem neitaði að giftast honum því hún vildi meika það í borginni. Er komin aftur í gamla bæinn en þar sem hún meikaði það ekki sem plötuútgefandi í borginni, þá að sjálfsögðu startaði hún bara slíku fyrirtæki í gamla bænum og er þegar búin að finna eina stjörnu (í fyrstu hljómsveitinni sem hún náði til sín) og sú er alveg að meika það feitt og agalega þakklát Peyton fyrir að finna sig.

Nathan:
Bróðir Lukasar, giftur Haley og pabbi Jamie. Var rosa góður í körfu, samt svaka skaphundur og slasaðist á skapvonskufylleríi. Lamaðist og var lengi fullur í hjólastól, en auðvitað komst hann á réttu brautina og er í því núna að vera voða meðvirkur með háskólakröfuboltamanni sem virðist vera jafn góður og jafn skapvondur og hann var sjálfur. Reynir af öllum mætti að bjarga kauða frá því að tapa af NBA eins og hann gerði... nú er hann bara agalega fullkominn eitthvað, voða sætur, að vinna í sínum málum, voða góður pabbi, stóð með fjölskyldunni frekar en ljóta pabba sínum sem drap bróður sinn..... nenni ekki út í þá sálma

Haley: Voða sæt eins og allir hinir, móðir, eiginkona, kennari og agalega klár tónlistarmaður sem ætlar að fara að gefa út plötu. Að sjálfsögðu bara 21 eða 22 eins og þau hin.... býr í risa húsi með risa sundlaug með sæta manninum og sæta barninu.

Jamie: hann er bestur af þeim öllum, hann er fimm ára sonur Haley og Nathan. Hann er fyrir það fyrsta agalega sætur, hann er svo djúpur að fimmtugir karlar hafa ekki náð slíkri dýpt, jafnvel þó þeir hefðu horft á flesta konuþætti og lesið margar konubækur. Jamie teiknar myndir með boðskap sem hittir alltaf í mark, hann virðist vera trúnaðarvinur allra vina foreldra sinna, hann fær að taka þátt í öllu með foreldrunum og vinum þeirra og  veldur því að meira að segja einhleypar vinkonur (reyndar bara ein) vill ættleiða barn bara af því að hann er svo frábært barn.

Brooke: agalega sæt (of course), moldrík búin að meika það í tískubransanum, 22 ára eins og þau hin, hún tók barn í fóstur þó hún kunni ekkert á börn og bara ekkert mál að redda sér ósofinn með veikt barnið og hanna bara nýja fatalínu á börn.... flottari en allt sem hefur komið á markaðinn fram að þessu... eitthvað alveg nýtt og spennandi. Hún reyndar sökkar í karlamálum... en virðist vera að krækja sér í skurðlækninn sem skar fósturbarnið upp.... þetta er allt mjög tilfinningaþrungið.

en af hverju skildi ég svo vera að horfa á þessa veruleikafirrtu þætti sem mér finnst svo gaman að hæðast að.... nú það er einfalt.

Það blundar í okkur öllum ævintýraþrá, hvað er meira ævintýri fyrir lífsþreytta húsmóður (fyrir utan að ég er alls ekki lífsþreytt) en að horfa á hina fullkomnu fjölskyldu, hin fullkomnu börn, fullkominn eiginmaður sem veit hvað hún hugsar áður en hún er farin að fatta að hugsa það sjálf....... hið fullkomna ævintýri

sagði vogamærin og hvarf á vit ævintýranna

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 09:51:51 / elinsam

fyrstu 100 tækin

hann sonur minn fékk voða sniðuga bók í afmælisgjöf. Hún heitir fyrstu 100 tækin. Hún inniheldur 100 farartæki mynd og nafn sem er nú bara óskup sniðugt. Nema hvað að mér finnst frekar fyndið að þetta eru fyrstu HUNDRAÐ tækin, ég held að ég gæti aldrei fundið upp á fimmtíu farartækjum hvað þá meira. Á einni opnunni eru lestir...... og omg þetta eru örugglega 10 tegundir af lesturm, borgarlest, langferðalest, millilandalest, farþegalest, kolalest, einteinungur, neðanjarðarlest, sporvagn og einhverjar fleiri..... ég amk er mjög þakklát fyrir þá yfirburði sem ég hef yfir barnið mitt að kunna að lesa svo ég geti lært þetta allt með honum áður en ég þykist kenna honum eitthvað :)



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 19:49:30 / elinsam

sumarið er svo innilega að nálgast

er ekki farinn að hellast yfir ykkur sumarfílingur?
Ég get ekki að því gert en ég er orðin svooo spennt, fæ mjög langt sumarfrí í ár. Neita því ekki að ég velti fyrir mér hvað ég eigi af mér að gera. En það er svo sem af nógu að taka. T.d þarf að viðarverja grindverkið, setja illgresiseyði í trjábeðin, klára að skipta um glugga (kallinn sér reyndar um þá), byggja grindverk utanum sólhýsisgrunninn svo ormurinn geti leikið sér úti án brjálaðrar gæslu, fara með flöskur í endurvinnslu.... úff það eru orðnar svo margar í haug. Nú svo er hægt að gera ýmislegt til afþreyingar lika en einhvernveginn held ég að það væri nú sniðugt að nýta tímann sem hann hefur hjá dagmömmu til framkvæmda.

Núna eru bara veikindi á bænum þannig að við erum ekkert að nýta góða veðrið sem er búið að vera.

verst að bloggsvæðið í heilanum er orðið steindautt.....

þar til næst.......



» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 00:31:40 / elinsam

ansans vandræði

There was this couple that had been married for 20 years. Every time they made love the husband always insisted on shutting off the light. Well,after 20 years the wife felt this was ridiculous. She figured she would break him out of this crazy habit. So one night, while they were
in the middle of a wild, screaming, romantic session, she turned on the lights.

She looked down... and saw her husband was holding a battery-operated leisure device... a vibrator! Soft, wonderful and larger than a real one. She went completely ballistic. "You impotent bastard," She screamed at him, "how could you be lying to me all of these years?

You better explain yourself!" The husband looks her straight in the eyes and says calmly: "I'll explain the toy . . . you explain the kids."

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 23:16:57 / elinsam

WC pappírinn góði

Hrein og fersk  eftir sturtu, stóð ég framanvið spegilinn, ég virti fyrir mér brjóstin á mér og að vanda kvartaði ég yfir því hvað þau eru smá! Í stað venjulega svarsins um að brjóstin á mér væru  ekkert smá, breytti maðurinn minn út af venjunni og kom með  tillögu.

  "Viljir þú að brjóstin stækki, skaltu daglega nudda  salernispappír á  milli þeirra í nokkrar sekúndur."

 Þar sem að ég  vildi reyna hvað sem væri, sótti ég mér blað af salernispappír og stóð síðan  framan við spegilinn, nuddandi því á milli brjóstanna  minna.  

 "Hvað þarf ég að gera þetta oft"  Spurði  ég. 

 "Þau munu vaxa meira þeim mun oftar sem þú gerir þetta,"  svaraði kallinn minn.

 

 Ég hætti.

  "Trúirðu því virkilega  að mér nægi að nudda klósettpappír á milli brjóstanna daglega til þess að fá  þau til að stækka?"  

 Án þess að líta upp svaraði  hann,  "Virkaði á rassinn á þér, ekki satt?"

 

 Hann lifir enn og með mikilli sjúkrameðferð getur verið að hann gangi á  ný, jafnvel þótt hann muni áfram fá sína næringu um strá.  

 Heimski,  heimski karl.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 22:35:35 / elinsam

Að búa til barn

Að búa til barn. !!!

Jónas og frú gátu ekki eignast barn svo þau ákváðu að fá sæðisgjafa til að koma af starta fjölskyldu. Daginn sem 'sæðisgjafinn' átit að koma í heimsókn, kyssti Jónas konuna sína  bless og sagði 'jæja, elskan, ég er þá farinn í vinnuna, maðurinn kemur fljótlega.'

Hálf tíma síðar, er fyrir tilviljun, barnaljósmyndar, staddur í hverfinu hennar og hringir á bjöllunni í þeirri vona að fá verkefni.  Góðan daginn frú, sagði hann, ég er komin til að....... 'Ó, þú þarft ekkert að útskýra sagði Jóna feimnislega, ég átti von á þér.  Í alvöru, sagði ljósmyndarinn. Nú það er ánægjuleg, vissirðu að börn eru mín sérgrein??    Ja, það er nú akkúrat það sem við hjónin vorum að vonast eftir.  Gjörðu svo vel og komdu inn á fáðu þér sæti.  Eftir smástund sagði hún, vandræðalega, 'hvar byrjum við?'   'Láttu mig bara sjá um allt.  Ég byrja yfirleitt  í baðkarinu, svo á sófanum og loks nokkrar á rúminu.  Stundum er meira að segja stofugólfið heppilegast, það er hægt að teygja svo vel úr sér það '

'Baðkarið, stofugólfið, hugsaði Jóna,  Engin undra að þetta gekk ekkert hjá okkur hjónum -   'Já, frú mín góð, ég get ekki lofað fullkomnum árangri í hvert skipti, en ef við notum mismunandi stellingar og ég skýt frá mismunandi sjónarhornum, þá þori ég að lofa að þú verður ánægð með útkomuna.'  Vá, það er aldeilis mikið sagði Jóna með andköfum.  'Frú mín góð, í mínu starfi verður maður að gefa sér góðan tíma í hlutina. Ég mundi gjarnan vilja skjótast í þetta en ég er viss um að þú yrðir ekki ánægð með útkomuna. 'Ætli maður kannist ekki við svoleiðis, tautað Jóna lágt'. Ljósmyndarinn dró upp nokkur sýnishorn af barnamyndum og benti Jónu á árangurinn.
'Mér tókst sérstaklega vel til með þessa tvíbura sagði ljósmyndarinn, eins og mamma þeirra var þó erfið'.  -  'Var hún erfið, spurði Jóna ?' '´Ég er nú hræddur um það. Ég varð að fara með hana í lystigarðinn til að ná að ljúka verkinu vel.  Fólk safnaðist að og fylgdist með. 'Fylgdist með? sagði Jóna og gapti af undrun' - og þetta tók í allt 3 tíma. Móðirin hrópandi og kallandi allan tímann - ég gat varla einbeitt mér, svo þegar það byrjaði að dimma varð ég að gefa í, en það var ekki fyrr en  íkornarnir voru farnir að narta í græjurnar þá varð ég að hætta og ganga frá.
Jóna hallaði sér fram og sagði 'voru þeir í alvöru farnir að narta í .... græjurnar?  Þetta er alveg satt frú mín góð.  
'Jæja ef þú ert tilbúin þá ætla ég að gera þrífótinn klárann 'ÞRÍFÓTINN???
'Ó já, frú Jóna. ÉG verð að nota þrífót 'to put my Canon on, It's much too big to be held in the hand very long.'
 
ÞAÐ STEINLEIÐ YFIR FRÚ JÓNU.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 17:49:21 / elinsam

júrótrash

voru þau ekki bara fín í gær fólkið?
Kannski fyrir utan skítakommentið sem Friðrik Tómar sendi frá sér


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  72  Alls: 52714