vogamærin

Vogabúar

15.06.2008 01:29:26 / elinsam

Bæ bæ ást

Ég fór í sjoppuna í gær, var búin að sjá auglýst að nýji diskurinn með Hvanndalsbræðrum ætti að fást í enneinum. Þeir voru nú ekki til en hins vegar voru tveir diskar á safnkortstilboði. Diskurinn með landi og sonum og svo Örn árna og hann Pétur álftagerðisbróðir.... saman kallast þeir víst yfirliðsbræður..

Ég ákvað að kaupa þá bræður þar sem stelpan í sjoppunni sagði að þetta væri mjög skemmtilegur diskur. Hún hafði nú ekki mikið álit á þessu þegar mamman keypti en svo heillaðist hún líka og verslaði eintak. Ég þekkti ekkert af þessum lögum en hún sagði að þetta væru lög sem maður þekkti þegar maður heyrði þau... ok... því ekki það. Þarf að eyða þessum punktum hvort eð er.....

Við fyrstu hlustun heillaðist ég ekki...... svo eftir að hafa hækkað í tækjunum og gefið þessu meiri sjens þá vandist diskurinn vel.

Nú er ég hins vegar komin með leið á honum....... enda búin að hlusta á hann þrisvar!!

sagði vogamærin alveg laus við yfirlið
Anna Sig skrifaði
Hvað er með þig og bræður? Er þetta af því að þú átt engan bróðir? hahaha :)
En annars heyrði ég að þeir yfirliðsbræður þurftu að cancela tónleikaferð um landið vegna lítilla vinsælda...
Elín skrifaði
suss... þessir bræður bæta nú ekki upp bróðurleysið get ég sagt þér.... þá fer ég nú frekar í Hvanndalinn!!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 53801