18.08.2008 14:17:35 / elinsam
úps.... hvert fór það
nú jæja.. þá er komið að einn einu árlegu sjokkinu.... "guð sumarið er búið" skjokkið er að skekja líf mitt þessa dagana!!
Ég hef ekki unnið síðan fyrir júróvísíon, þá beið ég nær pissandi í mig af spenningi, ég var að far að hefja lengsta sumarfrí sem ég hef átt síðan ég komst á vinnumarkað í kringum 10 ára aldurinn. Ég var að vísu ekki á vinnumarkaði síðasta sumar þar sem ég var enn í fæðingarorlofi en ég tel það nú ekki með þar sem ég puðaði og þrælaði sem móðir í fullu starfi með barn sem hefur alltaf verið eins og engill 
En jæja... það var nú ýmislegt sem stóð til að gera í sumar eins og svo oft áður.. ég gerði fæst af því... þó gerði ég nú meira en oft áður. Ég ætlaði reyndar í fleiri útilegur, við fórum í eina... sem var reyndar svona semi útilega þar sem hún fór fram á lóðinni heima í Grindý. Þegar barnið rumskaði skaust ég á fætur inn í hús til að hita mjólkina í örbylgjunni... ekki mjög útilegulegt en hentaði vel.
Nú ég keypti sundkort og var nokkuð tíður gestur í sundlauginni hérna í Vogunum. Ormurinn er meira að segja með smá skýlufar!!
Ég reyndi að gera fingur mína grænni.... og jú jú, þeir grænkuðu. Hef lagt hjartað og sál í að klippa til runnana mína og á varla heitari ósk en að gera þá þétta og fallega (það er sko heitasta garðóskin) er því í lamandi sorg núna þar sem angans litlu runnarnir sem döfnuðu svo vel eru alsettir ryðsvepp. Nú í beinu framhaldi af því að þá er ég búin að fræðast nokkuð um ryðsvepp og hvernig Gljávíði tókst að harka hann af sér í kringum aldamótin...
Stefnan var að kaupa kort í húsdýragarðinn og hreinlega búa þar... við fórum tvisvar ég, ormurinn og pabbi. Annað skiptið var í boði stöð tvö og hitt bara svona til að eiga góðan dag. Sonur minn er ekkert eins spenntur fyrir þessu og ég hafði planað þannig að kortið í garðinn verðu nú látið bíða betri tíma.
nú, svo var stefnan tekin á fjallgöngur (sem mér finnast nú ekkert svo skemmtilegar) en ég lét nú bara duga að rölta um heimabæinn og hlusta á son minn segja frá því sem fyrir augu bar: "bíll - bíll - bíll - hjól - ljós - bíll - bíll - ljós - bíll - hjól - bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll bíll" og eitthvað í þeim dúr
Það var einmitt út af svona samræðum hjá börnum í gegnum tíðina sem mér fannst ekkert liggja á að fara að unga út.... almáttugur hvað börnin gátu verið leiðinleg!!! En þessi elska hann sonur minn, hann er ekki leiðinlegur, hann er fróður, athugull, skemmtilegur, samtalsfús, fróðleiksfús og fleira í þeim dúr. Ég var sannfærð um að við fengjum þvílíkan leiða á hvort öðru, hangandi heima í allt sumar, en því er fjarri... við erum bæði ennþá ótrúlega skemmtileg
sagði vogamærin og rölti af stað til að skæja skemmtilega barnið á leikskólann