jæja.... kominn tími síðan síðasta blogg leit dagsins ljós.
Alveg með eindæmum hvað maður er orðinn latur að blogga þessa
dagana. En jæja, það sem hefur gerst.... ég er orðin 29 ára og
nokkrum flíkum og rósum ríkari en áður. Alveg merkilegt hvað maður
á nú gjafmilda að... meira að segja þó ég hafi ekki einu sinni
verið heima hjá mér á afmælisdaginn og hvað þá boðið fólki upp á
eitthvað í tilefni dagsins.
Nú ég fór á árshátíð svæðisskrifstofunnar og það var bara
þrælgaman, Skari skrípó var veislustjóri og stóð hann sig með príði
kallin... þar sem borðið okkar var alveg upp við sviðið og við
hjónaleysin sátum í sætunum næst sviðinu þar að auki fengum við
bæði að aðstoða Skara við töfrabrögðin sín... algerar hetjur. Og
svo kom Örn Árna og söng og skemmti.... voða gaman líka... en við
gömlu hjónin vorum bara snemma í því og fórum um eitt... sökum
aldurs og þreytu... ég ætla að verja mig með því að segja að ég
hafi ekki verið alveg búin að vinna upp orku eftir veikindin mín
deginum áður... var mest hissa á að geta mætt.
Nú og hvað fleira hefur gerst.... eflaust margt og mikið en ég
nenni ekkert að tjá mig neitt sérstaklega um það.... ji hvað maður
getur nú verið latur... er eiginlega hætt að nenna að tölvast á
daginn.... er dottin inn í Leiðindaljós á ný og farin að horfa á
nágranna strax á eftir... alltaf gaman í vogunum get ég sagt þér og
svo er ég bara sofnuð fljótlega eftir 10.... já já svona er að
eldast... amk þar til maður er orðinn miklu eldri og er farin að
þjást af svefnskorti og vakna fyrir allar aldir. En mér til varnar
ætla ég nú líka að taka það fram að ég vakna á morgana um helgar!!
Áður en klukkan hringir... mér finnst það nú ótrúlega flott...
Ég skellti mér með múttu minni í nordica spa á laugardaginn...
lágum þar eins og skötur og létum sjóða okkur í vatni... var að
vísu ekki svona vond lykt af okkur eins og af skötunni.....
eiginlega ylmum við mamma bara þrælvel verð ég að segja,
sérstaklega eftir að hafa spreyjað á sig ilmvatnsprufunni sem hún
mamma fékk á snyrtistofunni.... já já... mörg mörg ár....
en jæja... nenni ekki meiru... allt slúður og aðrar fréttir eru
vel þegnar hér í kommentum, emilum eða bara með hringingu séu
fréttirnar ekki prenthæfar...
farið svo vel með ykkur og njótið páskana... hvað á annars að
gera um páskana???
kv vogamærin