ég gerði merka uppgötvun í dag, en ég uppgötvaði með sjálfir mér
hvernig námi í sönglist Íslands er háttað...
Námið í sönglistinni er svo sem ekki nýtt af nálinni en fyrir ca
þremur árum eða fjórum var námið endurbætt og gert með nýju
sniði.... þetta er fjórða árið núna held ég og er enn búið að
breyta grunn áfanganum lítillega. Eftirfarandi er námsskráin í
Sönglist Íslands:
SÖN103: Nemendur læra að taka óyfirvegaðri og svínslegri
gagnrýni ásamt því að læra að tjá tilfinningar sýnar með ýmist
mikilli gleði eða mörgum tárum. Ekki er unnt að hleypa í gegn nema
takmörkuðum fjölda nemenda og eru því bestu nemendurnir sem
komast áfram. Á önninni fara fram nokkur skyndipróf og þeir
nemendur sem falla á prófunum detta jafnóðum út úr
áfanganum. Þeir sem sýna mestu framfarir og bestu getuna
fá til viðbótar kennslu í framkomu, vali á lögum, aðstoð við
að útsetja miðað við eigin getu og smekk, aðstoð við að skapa
sinn stíl. Námið leggur mikla áherslu á raunveruleg verkefni
og fer því lokahluti námskeiðsins fram í Vetrargarðinum í
Smáralind. Lok námskeiðsins einkennist af vikulegum prófum þar sem
reynir á hversu mikið nemendur hafa lært á námskeiðinu og er einn
nemandi dæmdur til þess að falla í viku hverri. Einungis er hægt að
útskrifa einn nemanda eftir hvert námskeið sem fær tækifæri til að
vinna með fagmönnum að plötu sem ekki er tryggt að slái í gegn.
SÖN203: forkrafa er áfanginn SÖN103. Nemendur þurfa að hafa
staðið sig mjög vel í fyrri áfanga og hafa náð
nokkrum skyndiprófum þar ef ekki öllum. Áfanginn er próflaus
og er einungis veitt einkunn fyrir frammistöðu í verkefnum.
Nemendur þurfa sjálfir í að finna sér vettvangsstaði, útgefanda,
umboðsmann og stýlista. Nemendur læra að koma sér áfram á Íslandi,
öðlast reynslu í markaðssetningu, fá frekari þjálfun í námsefni
fyrri áfanga. Áfanganum lýkur með geislaplötu á íslenskum
jólamarkaði og segja sölutölur til um framhaldið.
SÖN303: forkrafa SÖN103, SÖN203 og/eða hæfni í markaðssetningu
ásamt klíkuskap. Nemendur fá enn frekara tækifæri til að sanna sig
á sviði listarinnar, verkefnin eiga að teljast raunveruleikatengd
og lýkur áfanganum með þátttöku á lokakvöldi íslenska
Evróvísíjónsins. Einungis er einn nemandi útskrifaður á hverju ári,
en áfangann má taka aftur þegar hann er kenndur, annars er valin
hentugur nemandi sem þykir líklegur til að ná Samræmduprófi í
Evrópu.
SÖN403: Undanfari: enginn af ofangreindum áföngum og að hafa
Einar Bárðar sem umboðsmann. Verkefnin eru raunveruleikatengd og
fara fram á erlendum vettvangi eftir mislanga þjálfun á Íslandi.
Þeir nemendur sem verða heimsfrægir á Íslandi fá að prófa ýmsa
vettvangsstaði erlendis. Nemendur fá að auki þjálfun í
myndbandagerð, tónleikahaldi og að vera á vinsældarlista í einhvern
tíma. Náminu lýkur um það leiti sem nemandinn brennur út.
Sagði vogamærin sem mætti ekki í sönglistaskólann